swinger

Thóra rassastóra;);)

05.06.2008 18:46:39 / solskinsbarn

á laugardaginnn.....

ég er nú alveg ad koma heim svo ég aetla bara ad kenna ykkur ad taka tequila svo allir geti verid med í sumar;);)

Fyrst byrjar madur svona.... í útifötunum
svo liggur leidin ad barnum
Anna Gudrún aetlar ad fylgjast vel med


Salta vel!!! ;);)


1.. 2... og ... skjóta

sídan sítrónan...

ummm hún er gód

svo endar madur skaelbrosandi;);) veiii


oftar en ekki med Sörunni ;);)

eda Hillary.. hún er hot mamma

 ég elska tig Frída;)


veiii ég hlakk til ad koma heim;);)



verdlaunin tín sara.... KOOOOOSSSS og knússs frá mér ;);)


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.05.2008 22:15:45 / solskinsbarn

BRÁDUM KEM ÉG HEIM


ég er að stikna
mér er svo heitt
ég er alltaf sveitt
er líka farinn að fitna

flott rím ha!!


þetta er mjög ljúft líf núna, fer alltaf með Glódísi niður í park og þar sit ég í sólinni og les sannsögulegar hetjusögur;) annars var ég ad uppgötva SUDOKU, það er mjög skemmtilegt og tíminn gjörsamlega flýgur frá manni, allt í einu er Glódís bara vöknuð og þá er kominn tími til að fara í sandkassann eða renna í rennibrautinni. Það getur líka verið skemmtilegt;)

JESÚS.. ég var í lestinni um daginn og var að gera súdókú, allt í einu finn ég eitthvað mjög mikið kitl og sting á milli lappanna, eiginlega bara í klofinu, mér brá so mikið að ég hoppaði upp úr sætinu mínu og hristi mig alla og pilsið mitt svoo leit ég upp og sá þá að öll andlitin í vagninum voru starandi á mig, ég nennti ekki að fara og finna þýsk orð og útskýra fyrir þeim að það hafi verið eitthvað ógeðslegt dýr sem égsá ekki en égfann mjög greinilega fyrir því, ég settist ´bara mjög rólega aftur niður og fór að gera súdókú, en það besta var að ég roðnaði ekki neitt, því ég er svo rauð (eiginlega samt brún) út af sólinni veii veii;);)

ég fann 10 evrur um daginn liggjandi á götunni, ég hefði ekki átt að taka þær, veskinu mínu var stolið í dag með svona ca 50 evrum og síminn minn var þar líka og ég átti svona gjafakort í HM og svona Búnaðarbanka gjafakort  það er allt farið og lestarpassinn minn líka... leikjakortið mitt er farið.. helvítis pönkarar

svo var mamma að segja mér að taskan sem var týnd í Köben, en var fundin, var víst aldrei fundin, bara miðinn af henni!! greit, ég kenni póstkonunni alveg 90% um, jeg spurði hana hvort þetta mundi halda, hún sagði JA sefföllig... ég skal taka á mig svona 10% það má víst ekki gleyma að skrifa landið á miðann, en hvar annars staðar í heiminum er Grundartjörn eða Selfoss ;);)

Úff fjölskyldan mín hérna er að fara til íslands í heilar 2 vikur og ég verð hér aaalein með 2 kisum, sem eru ekkert svo skemmtilegar. ohh fokk síminn minn er stolinn svo ég er ekki með nein símanúmer!!! Frábært og hver ætli viti heimanúmerið mitt hérna!! já einn maður veit það, Ralph þjálfarinn minn, hann er gamall 50 ára eða eldri, ég er ekki svo góð í að giska á aldurMANN Scheiße hvað geri ég. Humm ég er með flickR síðuna hans Darrans (uppáhalds norður-írski vinurinn minn) ég sendi honum komment.... ég veit ég fer í ferðalag,til Frakklands og sjá alla París eða ég hangi á strikinu og vonast eftir að hitta einhvern sem ég þekki eða ég hangi með pönkurunum og sjái hver þeirra er með símann minn eða já ökuskírteinið mitt. ummm París og fá schoko croissant og gott brauð.. svo fer ég til Ítalíu og þá sé ég sjóinn, það er langt síðan að ég sá sjóinn

Steinunn ef þú mundir nú lotta og vinna því þú ert aðeins heppnari en ég, þá kemuru: komdu komdu komdu og taktu þenna useless kærasta með eða mömmu eða pabba eða katrínu eða tusku það væri best, eða ef þú mundir bara taka Söru Huld snælduvitlausu pulsusysturina það væri beeest í heimi

Á sunnudaginn er síðast leikurinn í deildinni, við þurfum enþá bara eitt stig, við töpuðum síðast og ég held að ég hafi gert það, ég var svo fúl yfir að ég fékk ekki að spila að ég óskaði þess að við töpuðum og á síðustu mínútunni var fríkick hjá hinum og þær hittu á ótrúlegan hátt inní markið innst inni var ég mjög glöð.. Heimski Ralph, hann er í fýlu úti mig en ég veit ekki útaf hverju, hann lét mig ekkert spila í leiknum, og er ekkert búin að tala  neitt við mig,ég held að það sé út af að ég fór til Danmörku ég er líka ekki búin að komst mikið á æfingar...
þegar við vinnum á sunnudaginn það er að segja ef ég fæ að spila, því þá læt ég okkur vinna:) þá verður skálað í kampavíni og við fáum að drekka úr skónum, sem er svona 6 lítra glas og allir mega taka sopa nema þeir sem eru með herpes

Myndavélin mín er líka eitthvað farinn að taka skrítnar myndir, þær verða allar hvítar með smá skugga af myndinn sjálfri... mér bráðvantar myndavél það er svo mikið að ske og mikið af fallegu sem mig langar til að taka myndir af... Steinunn ég er að segja þér það fáðu þér VÍSA, hún er skvísa, í alvöru þá getum við( ég ) keypt fullt af hlutum á EBAY, einsog myndavél og kanski bara á 1 evru til 20 evrur, mig langar líka í gítar og það er hægt að fá hann á ebay fokk sko það er hægt að kaupa hús á ebay og yourdreamvacacions



Tóta, Jenny, Sissí og ég man aldrei Nicole??

Tótý8) Y'all luv me don't yah

Marleen. Lucie, Gudjónsdóttir, JEn Warner



voru nokkrar myndir af vorfestinu;)


jöja alle sammen
ich sage tschüss
far vel
baejó

p.s hver verdur fyrstur til ad kommenta ?????
verdlaun í bodi


» 21 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 21:29:37 / solskinsbarn

Blogg

afmæli búið
Steinunn farinn
Gott veður
Vont veður
Fótbolti
Skoraði mark
fótbolti
efstar í deildinni
fótbolti
komust í unterturkheimer zeitung (newspaper)
Boollywood dancing jeijj
Tyrkja diskó bwaahhh
 páskar
fullt fullt af súkkualaði
fullt fullt af gjöfum
páskar hér næstum einsog jólin
meistarakokkur
ég elda góðan mat
þýska er skemmtileg sama hvað aðrir segja


Já eiginlega það sem er búið að gerast hjá mér síðustu daga
Það sem er að fara gerast :
Andri kommer pa besög
Við förum á fólksfest (októberfest)
-tívolí, ávextir með súkkó, candyfloss;);)
ætla að neyða hann með mér í salsa dans;)
danmörk-reounion-Heidrún- NIH fólk
ég ætla að fara æfa mig í dönskunni, tala bara þýsku þegar ég reyni..
rifja upp dönsku lögin, vísur og skoða myndir

þegar ég kem til baka er bara einn mánuður þar til ég kommer hjem...bara maj eftir
ég á eftir að gera svo margt samt
en þá kem ég til fagra landsins, get farið að vinna í skemmtilegustu vinnu í heimi,
talað við þýska ferðamenn ;)
farið í ferðalag
hoppa ofaní ííískalt vatn
grilla
fara í sund
hoppa á trampólíni
dansa
tjútta
hitta þig
þú hittir mig

Sumarið er rétt handan við hornið.... í næstu viku í Þýskalandi
ég er kominn með freknur og ljósara hár
þá er komið sumar;)

vi skåler med vores venner
og dem som vi kenner
dem som vi ikke kenner
dem skåler vi med


ég kann enþá svona ein bisschen denisch
þýskuorð dagsins

OMA=amma
OBA=afi

Ich liebe leben= ég elska lífið



Fríða, það gleður mig mjööög mikið að þú tókst myndir af JUSTIN-miðunum, ég held að minn hafi lent í þvottavélinni;)
 liebe grusse Þóra the greatest 



» 15 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 11:52:58 / solskinsbarn

hip húrra


HIP HÚRRA DAS IST MEINE GEBURTSTAG
HIP HÚRRA DET ER MIN FÖDSELSDAG
HIP HÚRRA ÞAÐ ER AFMÆLI

Já mæ chemps það er rétt
ég á
AFMÆLI Í DAG
 OG ég er 21 árs
ÉG veit fyrir víst að það eru fullt af pökkum á leiðinni yfir hafið til þýskalands handa merkilegri dís;);)

Þeir sem vilja senda mér vísu eða bara afmæliskveðju þá er þetta númerið mitt
004917675585090
ef þið hringið þá svarar falleg álfkona sem syngur fyrir ykkur alveg þangað til þið segjið STOPP STOPP

svona var í fyrra aumingja þið sem misstuð af því

kakan var góð umm

sigrún var hress

ég var hress

strákarnir hressir

jórunn var hress

Fríða lék við hvern fingur=HRESS

Eyþór var hress



Guðný í gírnum = Hress

Hófí ávalt hress

ég fékk vinkonur, voru hressar

HRessleikinn í fyrirrúmi





hress hress


» 15 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 23:17:25 / solskinsbarn

Zorro



Ég er hætt við þessa Flickr síðu  ég fann aðra miklu betrari og fínari;)

http://picasaweb.google.com/totalitla

Fullt af myndum handa ykkur alveg síðan í byrjun.

Við vorum að keppa við Sindelfingen um daginn, þær eru sko í 3 Bundesliga en við erum svona 3 deildum neðar, þetta er allt mjög flókið og ég skil ekki enþá skiptingu á deildunum hérna, það eru 3 Bundesligur, þar eru bestu bestu liðin;);) svo er þessu skipt eftir sýslum og ég veit ekki hvað og hvað;);) En við UNNUM þær og það er mjög gott fyrir okkur;);)


Um daginn fór ég með Sevim á Schoko Fabrik, það var ótrúlega kúl staður, þetta var eiginlega bara partý í kjallaranum á einskonar verksmiðju, veggirnir voru mjög hráir og allt frekar mikið pönk;)  Bjórinn kostaði bara 2 evrur;);)  Svo var borðtennisborð og við fórum í pingpong, maður hleypur í kringum borðið og hver slær þegar röðin kemur að honum, það var ótrúlega gaman;);) Vincent venjulegi artifarti vinur minn var að DJ-ast og hann er drullugóður, ég var að fílann;)  Ég fékk líka leyndann aðdáenda þetta kvöld. Hann var mjög rómantískur og sendi vin sinn til mín með boðsmiða í party í næstu viku, sem adeins útvaldir fá ad koma í HAHA

Svo um daginn var 20 stiga hiti og ég fór í sund og vatnid var ííískalt, anton hetja synti samt fram og tilbaka. Þið hefðuð samt átt ad sjá þessi þýsku villidýr... NAGLAR. Ég fékk pinku freknur og þær eru enþá;) Ég fór líka í sirkus og þar var mjög liðug kona, línudansari og afríkudanshópur. Geit sem reið asna, og mjög horaðir hestar en enginn Ljón.

Ég var ad keppa á sunnudaginn og þegar maður er í keppni þá fórnar maður sér í allt og getir allt til að skora!!!  Það kom sending inní teig( sem sagt fyrir markið,fyrir ykkur,  þið ófótboltalegu vinkonur mínar;)) og enginn náði boltanum og hann var alveg að fara fram hjá, ég stóð of langt frá og eina leiðin til að ég myndi ná honum væri að renna sér í boltann.
Og nú ég er búin ad slasa mig á fætinum og der går ikke godt. Allt aftanvert lærið mitt er eitt sár, það er eins og ég hafi tekið ostaskerara og slicað upp á mér lærið. Það brann svoooo mikið og ég þurfti að fara til læknisins, hann hellti yfir mig sótthreinsandi vökva og það var ekki gott. svo ætluðu þeir að setja grisju yfir en það gekk illla að finna nógu stóra grisju svo þeir bjuggu bara til úr tveimur. En fyrst var settur plástur med silfuroxíði á, til að stoppa lekann og nú er ég með rass úr silfri. Ég fékk líka sprautu við stífkrampa. Ég mátti ekki fara í sturtu i þrjá daga, því það var svo mikil vökvi í sárinu og það þurfti að þorna. Nú er það þornað og plásturinn við, á morgun þarf ég að losa HJÁLP. En éger samt jaxl og ríf þetta bara með einni hendi
By the way ég skoraði ekki....

Ég fór í lessu partý á laugd, það var ekki skemmtilegt, það voru einungis stelpur þarna og tónlistin var bara vangalög svo þær gætu húkkað upp;)
Það var samt ein sem kom til mín og Sevim með rósavín og sagði að við værum fallegustu stelpurnar í partýinu, hún vildi fá okkur með sér eitthvað annað, hún kraup niður á hnén og hellti smá yfir okkur í leiðinni en hún kraup niður og sagði: Hér er ég niðri á hnjánum að biðja ykkur smukke smukke piger að koma með mér og vinkonum minum...   Það er miklu erfiðara að segja Nei við stelpur heldur en stráka. Ef þetta hefði verið strákur hefði ég sagt up yours á þýsku, en þetta var mjög erfitt og Sevim drusla hló bara eins og 14 ára, ég svona vildi ekki hlusta á stelpuna og þóttist ekkert skilja alveg, ætlaði að láta Sevim redda þessu.  En svo sagði ég að við værum ekki Lessur, hún bara JÁ ekki ég heldur, ég alveg nohh og hvað ertu þá..... Það er eiginlega góð spurning;);)

LOTS OF LOVE to jú all mæ champs


» 8 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 23:01:45 / solskinsbarn

ég á mér draum...

Hellój mæ champs

 

Ég fór til Swiss um daginn og keypti OSTA og ekta swissneskt SÚKKULAÐI, ég sá alvöru DEMANTA í alvöru Swarowski búð. Svo fékk ég líka að labba á Swissneskri götu og snerta swissnesk tré og heyrði í swissneskri Á, ég sá hana líka og á sumrin má synda í henni;)  Það voru falleg hús, svona gamaldags  eins og í ævintýrunum t.d HANS OG GRÉTA

 

Það er FASCHING í Þýskalandi núna, það er einhvers konar karnival og inní því er bolludagur og alls konar... en öskudagurinn er í heila viku;);) gaman gaman.. á fimmtudeginum fyrir FASCHING þá er konurráðadagurinn mjög skemmtilegur dagur , þá mega konur og þær bókstaflega eiga að ráðast á karla sem eru með BINDI og klippa það af.. Mjöggaman og þær öskra bara hann er með bindi og svo ráðast svona 20 konur á einn mann, vopnaðar skærum. Karlinn byrjar að grenja , nei þetta er BOSS bindið mitt. HAHA gott á hann, honum var nær að vera með bindi, þú mátt meira að segja klippa bindið af forsetanum. Ég leitaði árangurslaust að manni með bindi út um alla Stuttgart;)

 Það er komið vor í Þýskalandi, stjúpurnar eru að blómstra og annað blóm sem ég man ekki hvað heitir er líka farið að blómstra, túlípanarnir eru farnir að vaxa og eftir ca 2 vikur verður Stuttgart allt út í marglitum blómum. Sólin er líka heit og hún skín á hverjum degi, en loftið er samt kalt, ég er með smá rauðar kinnar eftir sólina í dag;);)

Ég er alltaf búin að gleyma að segja ykkur að ég er með svona myndasíðu en ég man ekki hvað slóðin er hún er allavegana á FLICKR, ég skal leita og finna;)

Það er eitthvað að FLICKR en ég er búin að læra að segja HÆ  alls konar tungumálum

Hej =Sænska
Hala= Arabíska
Szia= Ungverska

Ég skal lofa að vera með vikublogg en ekki mánaðarblogg framvegis.. allir sáttir Hjördís líka þú ;);)

Til hamingju með afmælið á morgun Sunna Kristín, nú ertu orðinn stór eins og sterk eins og ég jeijj;);) ég skal baka handa þér köku elskan mín ;);) you know why hehe;)

Bráðum fæ ég líka heimsókn, Steinunn kemur 13. mars og Anton eftir eina stutta viku

Bráðum á ég líka afmæli, nú geta allir farið að senda pakka, ég var líka búin að gleyma að segja ykkur frá því heimilisfang og sími er þarna uppi til vinstri eða hægri, hvernig sem á það er horfið, en afmælið mitt er eftir nokkra daga  bara 14 +17  sem gera 31 dag vá það er ekki neitt, þá er líka st.Patricks dagur í Írlandi, heppnir þeir að hafa svona fallegan dag fyrir þjóðhátiðardag;);)

Í dag er líka Valentinstag og það voru allir með blómvendi og súkkulaði í hjartaboxum, allir voru líka glaðir :haha: ég var líka þó ég hafi bara fengið punch í öxlina frá Darran, hann er alltaf í gulur bíll, bjalla-leiknum og ég nenni ekki að leita að bjöllum, þannig eru reglurnar hans, bara bjöllur og þú verður að segja litinn á þeim;);)

heimska flikr eyðilagði allt fallega bloggið, ætlaði að setja fallega mynd af mér handa ykkur að horfa á




Steinunn reddaði þessu ég og mamma bjútý ;);)

Þóran ykkar í Þýskalandi


» 12 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 22:18:49 / solskinsbarn

Rjómatertan mín






» 1 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 00:04:41 / solskinsbarn

Taktu til við að tjútta.....

teygja búkinn og hrista

 

jólin eru búin og ég er kominn til Þýskó smýskó again... Jeijj það var gaman að koma aftur, fara í u-bahn og s-bahn, sjá mercedes merkið og sjónvarpsturninn og auðvitað fallegu fjölskylduna mína, reyndar beit ein kisan mín mig í gær, ég vildi ekki leyfa henni að sofa í töskunni minni :$

úff ég var aðeins að fara yfir tapið sem ég hef orðið á þessu ári shitt og sheiße..

Karmalöggan hefur líka verið á eftir mér. Til dæmis í Frakklandi þá fann ég þennan líka fína síma í einni brekkunni, ég skransaði alveg og hoppaði í hring á brettinu til þess að ná í símann og ég sá að það var kveikt á honum og ég tók hann bara, það hefði bara einhver annar fundið hann. En svo var síminn alltaf að hringja, en hann var á silent svo ég tók ekki eftir því, en ég hringdi ekki til baka.... Svo daginn eftir þá týndi ég nýju og fallegu snjóbrettagleraugunum mínum. ÉG ÆTLA ALDREI AÐ STELA NEINU AFTUR!!!!!

 Myndavélinni minni var stolið í skólanum, ég týndi símanum mínum í fisketorvet, í sumar sendi ég  20 kg tösku heim frá Dk fulla af fötum og skóm hún hefur ekki skilað sér, vikunni á eftir týndi ég peningaveskinum mínu, með vísa, debet, 500 kr dönskum, nokkrum persónulegum munum og númerinu sem ég hefði þurft að nota til að finna töskuna aftur GRAIT ÞÓRA.  Sumarið á íslandi gekk nú bara sinn vanagang, fólk hringdi oft og spurði hvort ég ætti nokkuð þessa peysu eða þennan jakka. Svo fór ég í familie reuonion úti á Reynó, ég kom á hvíta litla þið vitið NISSSaNINUM, ég lagði bílnum við græna leikskólann og auðvitað lokaði ég vel og læsti, svo fór ég inn til ættmenna og fékk mér öl og vín, svo daginn eftir þegar ég ætla að sækja bílinn út á leikskóla, fann ég hvergi lykilinn, sama hvar ég leitaði, ekki útá reynó, ekki heima, ekki í bílnum hennar Söru, ekki í fötunum mínum... FOKK og aftur GRAIT ÞÓRLEIF . Pabbi var sko ekki ánægður með mig því löggan þurfti að opna fyrir honum bílinn, hann þurfti að taka svissin úr bílnum og fara með hann á einn stað og láta smíða nýjan lykil og svo þegar það var búið var hægt að stinga lyklinum í svissinn og þá var hægt að draga bílinn inná verkstæði og láta tölvuna tengja lykilinn við bílinn... VESEN  og það kostaði marga marga peninga

Ég var mjög dugleg í Þýskalandi að týna sama sem engu, kanski svona einstaka vettlingum og eyrnalokkum og 5 evrum hérna eða þarna, gleymdi reyndar einu sinni fallegu hvítu takkskónum mínum en ég fann þá nú aftur ;);) Í LONDON þá týndist ég sjálf, og var alein með engann síma sem virkaði, reyna að finna út einu töluna sem vantaði í 11 stafa númerið hennar Elínar, bölvaði enskum tíkalla símum í sand og ösku, hélt að það væri eitthvað að þeim, ég varð samt ekkert hrædd, mjög reið samt og urraði á fólk.. Svo tók bjartsýnin völdin og ég ákvað að ég myndi þá bara sofa á þessari lestarstöð í nótt fyndi mér bara hreinan pappakassa en fyrst ætlaði ég að að fara alein í sight seeing tour með einni rútunni þarna, mátti nú ekki missa af því að sjá big ben .... Þetta reddaðist nú allt á endanum, Elín búin að tala við Söru,Sara búin að hringja í mömmu og mamma búin að hringja í au-pair mömmuna og allir með áhyggjur. Ég hringdi í Lenu og bað um númerið hjá Helgu Lillian, því ég hélt að hún gæti reddað mér númerinu hjá Línu, en hún svaraði ekkert svo ég ákvað að heyra aðeins í Sörunni minni, hún var nú aldeilis glöð að heyra í mér, ég skildi fyrst ekki alveg þennan ákafa, en svo skildi ég allt saman og ég gisti hjá línu og lumma og fékk að sjá big ben sem er ekki svo BIG. Daginn eftir þegar ég var kominn út á flugvöll og var að tjekka mig inn í flugið fann ég hvergi passann minn, ég opnaði töskuna mína og rótaði út um allt, svo sagði ég við manninn : Heyrðu eiginlega þá finn ég ekki passann minn:$ en ég er með vísakort með mjög eyddri mynd. og ég komst í gegnum London á vísakortinu mínu. Linda au-pair mamma mín sagði: þú ert svo saklaus, enginn annar mundi komast í gegn á vísakortinu sínu hehehe.. Bara já ég er ekki með neinar sprengjur það er alveg satt....   

Milli jólanna og nýársins fór ég á ball í hveragerði og ég fór fyrst heim til Örnu og skildi bílinn eftir fyrir utan og ég læsti honum, en hurðinn öðru megin hafði ekki verið nógu vel lokuð, ég átti að vera að fara vinna í pulló eldsnemma daginn eftir svo ég tók pulluföt með setti þau ofan í töskuna mína og fór síðan inn til Örnu.  Daginn eftir þegar ég ætlaði að ná í fötin mín þá voru þau ekki þar: HALLÓ, þetta voru pylsulyktandi pulluföt, buxur flíspeysa og brjóstahaldari, reyndar mjög mikill uppáhaldsbrjóstahaldari og svo voru um 4000 kr í vasanum á buxunum, buxunum sem by the way elsku momy á :$ Taskan var samt skilinn eftir, takk fyrir það þú óprútni þjófur...  

 Ég strengdi nýársheit EKKI TÝNA FLEIRI HLUTUM  !!!!

 Árið byrjar samt ekkert alltof vel, Pabbi þvoði símann minn í þvottavélinni, huhumm já mamma myndavélin ykkar er held ég líka týnd.. Já og svo braut ég gleraugunum mín í gær, trampaði  ofan á þau sko, já ég var heldur ekki búin að segja þér það mamma mín, en eitt gott ég fann Ökukortið mitt ofan í skúffu hérna .. Já blessuð mæðan að eiga svona börn

 

LOVE AND PEACE TO YA ALL

ÞÓRA LITLA LIPURTÁ

P.S ég átti að segja frá þeim að Kristján og Siggi voru mjög góðir ferðafélagar í LONDON

 


» 21 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 22:46:58 / solskinsbarn

Bling bling

Jólin, jólin jólin koma brátt

jólakökur bakast smátt og smátt

 

 Það er farið að styttast í gleðileg jólin, þá verður sko snjókast og gaman grín.. Ó guuð ég sendi einu sinni ljóð um jólin í myndasögur moggans, ég teiknaði líka mynd oog það var birt JEIJJ heppinn ég ha!! bíðið ég held ég muni

Snjórinn fer að koma,

Þá allar plöntur sofa,

snjókast og gaman,grín,

ég hlakka til því

snjórinn fer að koma..

æjj það var kannski meira um snjóinn heldur en jólin, annars held ég að þetta hangi á töflunni uppá Reynó, svo ef þið kíkið í heimsókn til ömmu eða afa þá getið þið séð;);)

Ég skellti mér í leynilega ferð til Danmörku um daginn,  mér leið eins og ég væri komin heim og ég sveif um á lyseraudu skýi.. Það var svo gott að geta talað við fólk og það skildi mig og ég skildi það. Er y í að skilja humm skylja njee..  Ég elska Danmörku, ég hitti litla Rós sem er orðin svo stór, hún vildi líka leika við mig og henni fannst ég skemmtilegust.. Hitti elskulegu systir mína á hovedbanen, hún fann mig hjá mcdónalds og kallaði yfir allan salinn Þóóóorrrraaaaaaa oog þá kom ég á skýinu mínu fram yfir hornið, stökk af því og valhoppaði af stað til systurinnar..þá fórum við inná skítugan bar og þar sat Ingimar með lepp fyrir auganu og svarta skikkju á herðunum, reykjandi pípu og drekkandi öl, svipurinn leyndi sér ekki þegar hann leit uppúr hinum erfiðu gátum súdóku, hann hafði komið auga á Þóru the mighty, the one and onlý Tótus. Þá var offsa offsa kátt í höllinni;);) Þá fékk ég líka SPORT-lakkrís durumdurum

E

Eina myndin sem ég á úr Danmörku:(

 Svo fórum við til Ellu og Helga, þar klöngraðist tindilfætta stelpan með stutta hárið uppí rúm til Sörunnar sinnar sem vissi ekkert hvað var að gerast, því hún var föst í draumalandinu... Hitti Jósuna mína, offsalega falleg íbúðin ykkar, oog takk fyrir kökuna og pizzuna, þið eruð mjög gestrisinn hjón;) Hápunktur helgarinnar var svo þegar ég fór helt alene í seveneleven og fékk mér súkkulaði pålegg með undarennu.. umm ég fæ alveg gæsahroll... Svo þurfti helgina að enda og allir að snúa aftur til sinna landa.. mig langaði alveg að sleppa því að fara aftur til germany og fela mig bara í bakpokanum hans Ingimars, raunsæin fékk að ráða í þetta skiptið;);)

Það var síðan bara gott að koma til Þýskalands aftur, kisurnar mínar tóku á móti mér og við sátum og spjölluðum og borðuðum draum fram á rauða nótt;);)

þetta er hann monni

  Svo fór helefamilian í Tripsdril, það er svona skemmtigarður fyrir börn, mér fannst samt helvíti gaman, hann er alveg líka smá svona fullorðins, rennibrautin fór afturábak og alles og það er sko ekkert fyrir alla...

´

æjj hún er svo lítil ;);)

Ég fór sko í þetta tryllitæki

Ég fór líka í Wilhelmu, það er dýragarðurinn hérna og hann er mjööög fallegur, það er hægt að sjá kakótré... Þó það sé kominn NÓVEMBER er enþá allt mjög grænt

Ég sá mann í búri

Fór í þýskt afmæli á föstudaginn, það var gúdd... ég skoðaði innanhúsarkitektarblöð.. .já það var mikið fjöör...

Svona gerir fólk í þýskum afmælum.. ;);)

Ég fór og skoðaði Benz-bílasafnið, það var mjög fræðandi. Fór í einhvern hermi þar sem stóð á að væri ekki fyrir mjög stórt fólk eða fólk með innilokunarkennd. Ég er ekkert svo stór, þannig að það slapp, en svo ákvað ég bara að reyna soldið á inniloknuarkenndina, það komust sko bara 2 manns inn í einu.. En þetta var ekki neitt ég var bara í einhverju rallý í gegnum sögu bílsins, hitti Mika Hakkinen og svona;);) Þetta er mjög nýtískulegt safn, með þú færð þitt headset og hlustar svo á það sem þér finnst merkilegt með því að beina tækinu í áttina að þvi svona eins og fjarstýring;);)

Svo byrjaði ég finally í þýskulessons á mánudaginn... Þetta er það fyndnasta í heimi, ég er sko ekki góð í þýsku, en ég er líka bara búin að vera hérna í 2 mán.. það er fólk sem er búið að búa hérna í 12 ár og 5 ár. Það eru Tyrkirnir og þeir skilja ekki baun... Kennarinn er alltaf að spurja þau sömu spurninganna en samt geta þau ekki svarað...  KEnnarinn var til dæmis að spurja einn kallinn sem verður alltaf mjög vandræðalegur þegar það er talað við hann, hvort hann væri búin með verkefnið og hann átti bara að segja nei ég er ekki búin eða já ég er búin !!! Hann byrjaði á að segja já en svo nei og svo byrjaði hann bara að lesa upp úr bókinni eitthvað allt annað.... Svo er ég með einni Japanskri, sem er algert krútt, hún er 35 ára en lítur út fyrir að vera 22 ára.. Það er svo erfitt fyrir hana að skilja enda allt öðruvísi tungumál heldur en hennar, hún er alltaf að hlægja og hvísla,svo segir hún alltaf bara ó jaa hehe;) hún heitir Shoko eins og súkkulaði ummm namminamm...

Mér líður samt soldið kjánalega í þessu tímum, maður er alltaf að endurtaka það sem kennarinn segir... æjj þetta er bara alveg eins og i bíómyndunum.... Ég er bara aðeins of kúl for this skúl hahaha 8)8)

 

Glódís Mía stal brauði

Þetta er kannski soldið stórt fyrir krúsí

æjj  Hún er svo sæt

Þetta er líka hin kisan hún heitir Kúsi

eftir 25 daga nákvæmlega kem ég heim til mín í grundartjörnina, ahh það verður ljúft, þá ætla ég að setjast í sóffann´og klappa Tuskunni minni, svo ætla ég að fara í almennilega sturtu þar sem heita vatnið klárast EKKI... Svo kanski fæ ég mér vatnssopa og fer í heita pottinn;);) Síðan meigið þið tala við mig þegar ég er búin að öllu þessu... híhí;);)

oog bY THE WAY SPORT-LAKKRÍSINN MINN OLLI MÉR MIKLUM VONBRIGÐUM, HANN SMAKKAÐIST ALVEG EINS OG HÓSTASAFT

trén í Þýskalandinu

 

Þóra the greatest :haha::haha::haha:

pub crawl 114


» 14 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 23:50:06 / solskinsbarn

humm púðursykur eða sykurpúði???

Tataaaa

 

Mér finnst þessar auglýsingar alveg fyndnastar

http://youtube.com/watch?v=MFziCySvUQw

http://youtube.com/watch?v=1eYi1qL1A-M

http://youtube.com/watch?v=B8eUGtZr4Co

http://youtube.com/watch?v=s0j47NpYL_c

http://youtube.com/watch?v=kFA594MpJrs

þessi er very special

http://youtube.com/watch?v=awki6kctwQ4

 

 

 

hann er svaaluur, svaka nagli

á svör við öllu

Neihh hann er sko ekkert flóón

okkar maðuur Bugsy malóón duruddud

 

Það er farið að grafa í puttanum mínum og mér er farið að vaxa glæný tönn

 

Já bugsy oft í ströngu stendur

Því stráknum fallast aldrei hendur

Hann er fastur fyrir eins og fjall

traustur eins og klettur, kraftaverkakall

 

Það snjóaði um helgina , ljótum slyddusnjó.... hlakka til þegar það kemur almennilegur snjór, þá get ég verið alvöru bretta gella HAHA þið ættuð bara að sjá vidjóin.. priceless ég er svo sjúklega góð... En fótboltinn ætlar að skella sér í nokkra daga ferð til Austurríkis eftir jól...

Kata var á föstu með fúsa ljóta

Fúsi taldist til verstu þrjóta

hann gaf henni djákn og demantshring

dýrindis villur og limmósín

aríraríraríró

Þetta er eins og í bíómynd hérna,laufin á trjánum er svo stór og þau eru allavegana á litin, gul,rauð, græn og bleik verý bjútífúl;);) ooog þau eru enþá á trjánum

hjá samma

góðan daginn,gakktí bæinn gríptu þér hanastél

Sammi vill bara að þú látir þér líða vel

ójá ójá

 

Jólin eftir smástund, þys og læti í austurstræti, það er komið fullt fullt af jólaglingri í búðirnar, jólasúkkulaði og riiiisastór súkkulaðidagatöl, ég er búin að æsa mig upp  í jólaruglið enda bara 63 dagar í þau oooog 6.desember kemur þýski jólasveininn og gefur manni í skóinn, hann kemur bara einu sinni og maður fær alveg fullt stígvél

ég ætla að setja þessi út í glugga, eitt fyrir mig, eitt fyrir Önnu Sóley og það síðasta fyrir Glódísina;);)

 

mig langar mjög að vita hvað þessi maður er að gera

Ad sjá ykkur rjómabollurnar

Krúttköggull

Híhí helvítis krútt 

 ´

ég var bara látinn dúsa downtown í aftursaetinu, en ég fékk trópí í stadinn;);) 

 

ohh ég er búin að syngja bugsy malone í allan dag og líka fyrir ykkur

 

blæblæ Tótulíus litli8)


» 17 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 20:21:54 / solskinsbarn

Tridja blogg

Fór á Folskfest á föstudaginn fyrir viku og það var sko mikið rokk hehe. Stelpur í Heiðu búningum og strákar í þýskum jóðlarabúningum. Mikið drukkið af bjór, því bjórinn var aðeins seldur í 1 líters bjórglasi, það er eins gott að ég er svona mikill massi, því það má bara nota eina hendi til að lyfta glasinu. Meðan gleðin stóð sem hæst hrundi tóta litla niður og slasaðist alveg obbólega mikið, er með mjög stórt sár á olnboganum og bakinu.

 

 

 

 

 

 

 (Tessi er ein ljót sem vill ekki fara, svo ég leyfi henni bara ad njóta sín hérna; ég Ingimar og Honey nut klikkar ekki... Ingimar sérstaklega fyrir tig )

Ég lærði þýska slagara og hvernig madur skálar eins og sannur þýskur róni;);)  Maður átti bókstaflega að dansa uppá stólum og borðum, ég lét það sko ekki fram hjá mér fara, reyndi meira að segja að fara uppá svið, bara aðeins til að spjalla við gæjana á sviðinu, en það var einhver kall sem var alltaf að banna mér að tala við þá, en ég fór bara í sleik við hann og setti svo nærbuxurnar mínar á mikrófóninn hjá söngvaranum og hann var sko þokkalega heitur með mikið hár..... okay ég var að ljúga, en hefði verið mjög kúl að gera þetta ha;);)  


thora2 282

 

Hljómsveitargaurinn.. look at the g-strings

thora2 284

tessi ljóti var alltaf ad banna mér ad gera allt

thora2 285

En hann vildi taka mynd af okkur

thora2 257

Sjáidi hvad tad er miklu meira í mínum ha, tad er líka útaf hún hellti yfir mig ;)

thora2 069

Saet systkinin í Heidu og jódlarabúning

thora2 243

ó fokk ég var alveg búin ad gleyma tessu hahaha

Fór síðan aftur á Folksfest á fimmtd. með Lucie hún er mjög svöl strákastelpa, hún er með 7 göt í andlitinu, í augabrúninni, vörinni , tvö í sitthvoru eyranu og svo í tungunni en það lét hún gera þegar hún var pissestiv haha.  Þetta kvöld gat ég aðeins skoðað þetta með augum vitra mannsins, sá alveg offsalega mikið af gay fólki, ég hugsaði vá hvað það eru margir gay í þýskalandi, meira en annarhver maður.... þá var bjór tjaldið sem við fórum í, í bæði skiptin sérstaklega fyrir gay fólk.  Kynntist einum mjög skemmtilegum homma, sem langar mjög að koma til Íslands, því hann er óður í skandinavíska drengi, ég sagðist geta komið honum í sambandi við nokkra, og hey svo minntist ég á Pál Óskar , þú veist þessi sem var í eurovision, hann bara ohh jess I love him, ég sagðist ætla að koma þeim á fund saman, já eða allavegana að fara á dansiball með honum;);) .

Hann Gunnar Torfi heiti heiti er sko alltaf til

Kjartan ávallt reidubúinn

 Linda au-pair mamman mín var búin að segja mér að þýskir strákar væru svo kurteisir, það er sko ekkert klipið bara í rassinn á manni hérna eins og heima, kúl hugsadi ég . Heyrðu svo stend ég og er að dansa, ekki uppá borði heldur fyrir aftan bekkina og það kemur maður í hjólastól og ég auðvitað vík fyrir manninum og hann launar mér það með því að kreista svo fast í brjóstin á mér, það gerði vont og hann gjörsamlega sneri uppá geirvörturnar mínar og hvað átti ég að gera ég gat ekki lamið hann, HALLÓ hann var í hjólastól..  ég bjóst líka svo engan vegin við þessu, var alveg óundirbúin. Svo var annar, en hann lét tó brjóstin á mér í fridi, heyrðu hann var bara giftur og tad homma það er ekkert annað.... greinilega í mjög opnu hjónabandi haha.  

 

Fór til Strassburg á laugardaginn og það var mjög gaman, ótrúlega fallegt þarna og ég keypti mér líka fallegustu skóna mína. Myndavélin mín var e-ð klikk, held samt að það sé útaf að ég setti hana í hleðslu þegar ég kom heim af Folksfest hummm. Þannig að ég náði engum myndum af  Frakklandinu...  

Það er farið að verða svolítið kalt hérna núna, það er íííss kalt á nóttunni og á morgnanna, en þegar sólin fer að skína þá verður allt aftur hlýtt. Fótboltastelpurnar eru farnar að banna mér að fara úr á æfingum, þær segja bara NO NO you will get sick. Ein sagði meira að segja This is Deutchland not Iceland haha. Ég er núna búin að útskýra fyrir þeim að það er svona við frostmark á kvöldin á Íslandi  og ég spila alltaf á stutturum þar, sko þarna var svona 13 stiga hiti.  Já haha þær geta engan vegin sagt nafnið mitt, svo ég er komin með nickname og heiti Zorro hahaha. Tóta gengur aðeins betur fyrir þær..

 

Heidrún tessi er fyrir tig;)

Hummm  ég á fleiri svona fallegar myndir af mér á toilettinu, viljidi sjá ???

Thóra Klósetthóra

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 12:33:55 / solskinsbarn

Hey dance with me sister

Í Danmörku þá var ég alltaf með lag á heilanum, lag sem er hipp og kúl og heitir skólarapp...

Við erum öll að reyna að rappa, þessi rosa krakka stappa, við höfum langt á milli lappa...

Núna er ég með eitt alveg eiturhresst lag á heilanum, það er íslensk þýðing á laginu thriller það er svo skemmtilegt;).

Því þetta er hryllir, hryllingsmynd.

 Prófið að syngja.

Í gamla daga vorum  ég, Heiðrún og Hjördís alltaf heima hjá Heiðrún með wake me up diskinn stilltann á hæsta, við opnuðum sko alla glugga, svo einhver myndi heyra í okkur, já við vorum og erum mjög athyglissjúkar;);)  Við bjuggum til dans við lögin,en uppáhaldslagid var íslensk þýðing á it’s raining men. HAHA stelpur rifjið upp dansinn og munið þegar Helgi Héðins kom hjólandi...... þá vorum við sko graðar nei ég meina glaðar;);)

            

Tarna vorum vid á leidinni til Simma saeta:D:D Ég aetla ekki ad segja ykkur hvad vid erum gamlar tarna haha

Jæja er  byrjud ad æfa fótbolta og það er offsa offsa mikið gaman. Mér var strax boðið í partý með þeim, þjálfarinn kom og sótti mig klukkan 20:00.  Við vorum eiginlega þau fyrstu sem mættu. Partýið var haldið í kjallaranum hjá einni konunni sem er svona eiginlega mamma þeirra allra. Þetta var sko alvöru partýÞað voru diskóljós, dansgólf, bar og svona hola fyrir DJ.  Magnið af alkóhólinu þarna var roosalegt. Þegar ég kom inn var það eina sem ég heyrði what do you want ?  vodka, bjór, kampavín eða rauðvín. Alltaf þegar ég var búin með drykkinn minn, kom einhver hlaupandi af barnum með eitthvern gómsætann drykk, nema þegar þjálfarinn kom með skot handa mér e-ð Ramazzotti  Mér fannst soldið furðulegt að þær voru allar klæddar í gallabuxur og pólóbol, ég var sú eina sem var í kjól og ballerínuskóm, svo voru líka flestar sem höfðu tekið vinkonu sína með sér. Seinna um kvöldið fattaði ég að þær voru allarsamkynhneigðar fyrir utan 4;);)  Þær voru alltaf að spurja mig hvort ég væri viss um að ég væri ekki gay og líka hvort ég rakaði á mér lappirnar ;););) en þær eru ógeðslega fyndnar og alltaf að reyna að læra íslensku, þeim finnst íslenska líka ýkt kúl. Þeim finnst ég líka heldur betur  fyndin því mér er alltaf svo heitt á æfingum og ríf mig alltaf úr öllu nema nærbuxunum.. nei djók

Stuttgart 2007 462Stuttgart 2007 465

captain krissí og jenny                Ralf tjálfarinn og minns

Alltaf þegar stelpurnar koma á æfingu og fara, þá kyssast þær alltaf á báðar kinnarnar og líka við þjálfarann, fyrst var ég bara hey jó girly girl og gaf alltaf bara high five jess æm verý kúl;);)   Hvað segiði um að ég komi með eina þýska og loðna kærustu heim hehe

      Þær buðu mér líka í annað partý, það er svona oktober fest hérna, líkt og er í München, bara miklu minna af fólki, en það er miklu stærra tívolí hér  og allta annað miklu betra hehe;);)  Þá  á maður að drekka bjór úr mjög mjög stórri krús  og  það má bara nota eina hendi, en ég hlakka nú mest til að fara í öll tækin, tau eru sko mörg.

      Fór reyndar með Jó, Önnu og Glódísi í tívolíið. Ég og Anna fórum í speglasal og völundarhús, með glerum á milli, tannig tú sérð allt hvert tú ert að fara, en fokk ég var alltaf að þruma á glerveggina, við vorum að örugglega í hálftíma að reyna koma okkur út 

      Fór í kastalaferð í gær til lichtenstein, mjög fallegur kastali sem var byggður á 18.öld  

\

Stuttgart 2007 459                     Stuttgart 2007 455

Ég prófaði enn einu sinni að nota tösku undir allt, ætlaði ekki að láta hrakfarirnar í köben hafa áhrif, þar gleymdi ég veskinu í einum strætónum og þá var allt dótið mitt auðvitað í veskinu og ég var peningalaus og kortalaus. Ég er strax búin að gefast uppá að nota tösku hér, tútturnar mína rúma svo vel alla tessa hluti, það er svona verst þegar ég tek myndavélina með, þá eru þær óvenju stórar;);)  Fólki finnst líka mjög gaman þegar ég er að borga, alltaf að laumast inná haldarann til að ná í peningana mína hehe 

Og vá eruði að grínast ég er alltaf að eyðileggja eitthvað hérna í búðunum, þegar ég fór í supermarkaðinn, náði ég að henda túnfiskssalatdollu niður þar sem mjólkin var og auðvitað sprakk hún, svo fór ég að borga og var by the way síðasti kúninn, voru mjög að reka á eftir mér, stóðu svona 4 og biðu eftir að ég væri búin, en allavegan henti ég jógúrtdollu í gólfið og hún sprakk líka og  það fór út um allt, þarna kom moment þar sem ég var bara íslenskt álfadís, ofsalega saklaus og brosti bara mjög skökku brosi til þeirra. Ég var líka inní símabúð, og þið vitið hvernig veggirnir eru þar sem símarnir hanga, ég var rosalega relaxed hallaði mér svona uppað honum, veggurinn bara swing og ég með.  Hristi þetta nú bara strax af mér og hélt mína leið;)  

       En annars hvernig borðið þið stjörnurúllur? Ég borðaði allavegana alltaf fyrst lakkrísin og svo marsípanið,  en svo fór ég aðeins að hugsa að þetta væri nú soldið hallærislegt orðin 20 ára og enþá að borða þetta svona, þannig ég tók mér bita af öllu pakkinu, borðaði það ekki svona í snúð heldur beit bara beint í þetta og viti menn hún var miklu betri þannig, ég botna ekkert í því en hún er miklu miklu betri.  

      Fyrir þá sem vilja koma í heimsókn er ótrúlega margt og mikið hægt að gera;)

Það er benz-bíla safn hérna, það er very cool.

      Museum-mercedes-benz.com

Fullt af búðum

 \Stuttgart 2007 052

Það er ótrúlega fallegt hérna og fullt af görðum sem hægt er að týna epli og hnetur

\Stuttgart 2007 446Stuttgart 2007 066

Steinnunn fullt af fallegum pólóum, það eru til tveir svona alveg eins hérna í stuttgart

\

Stuttgart 2007 049

 

Audvitad sídast en ekki síst fullt fang af Thóru;);)

Ég Stuttgart 2007 129\ég Stuttgart 2007 196\\Stuttgart 2007 105 Stuttgart 2007 059

og aftur ég ;)             ég fékk haelsaeri

Ég meina hver vill ekki koma og kúra hjá Tótu sinni, þið fáið allt plássið í rúminu, ég tek ekki af ykkur sængina, en samt gef ég ykkur fullt fullt af knúsum yfir nóttina, það er nú bara plús.... mig vantar líka einhvern sem vill koma og klóra á mér bakið og hendurnar,  fikta í hárinu mínu og týna med mér epli;)

 


» 21 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 21:10:54 / solskinsbarn

peep durpel eda hitney whouston

All right 

You want a blog you get a blog GOT IT... 

Hérna er lífið dásamlegt, ég vakna á morgnana við að kisurnar kitla mig í tærnar.  Lít út um  gluggann, sé að það er sól og blíða. Syng svo morgunsönginn fyrir nágrannann( aha alveg eins og í friends nema ég syng SUNRISE SUNRISE LOOKS LIKE MORNING IN YOUR EYES .)

Ég týni epli af trjánum, kastaníur af jörðinni. Hleyp um grænu engin í bláum skokk og sólin hún skín svo skært, eg er komin með nýjar freknur. Svo sé ég alltí einu íkorna á vappi ég sest niður og hann kemur til mín og borðar kastaníurnar úr lófanum á mér, við hlæjum dátt og það er svo gaman.Vindurinn blæs um hárið á mér og ég byrja að syngja, ég syng um hafið, bjartar sumarnætur og óendurgoldna ást. Lífið er dans á rósum. 

Perur á sundi 

Puttinn bendir á rauðann kassa og þar sem rauði kassinn er, þar er hverfið mitt Bad Cannstad.

 

Sjáiði hann er að borða úr hendinni minni... ( Í þykjó er þetta íkorni okay, þið þykist ekkert sjá að þetta er geit.)

Í bláum skokk.... í hæstu hæðum...

 

\ 


 

Glódís Mía litla barnið mitt;);) Hún er alltaf með duddu og alltaf brosandi..

Anna Sóley stóra stelpan mín;);) Hún er ess-mælt og svo sæt híhí 

Fór út að borða fyrstu helgina... ALEIN  en tad var samt mjög gaman, þetta var einhver pizzu/kebab staður og allan tíman sat starfsfólkið fast yfir einhverjum tyrkneskri sápuóperu, mjög illa leikinni.. ég reyndi að fylgjast með, það var allavegana kona sem fékk sms og hún vard mjög skrítinn á svipinn, svo fóru allir að grenja. En ég fékk samt mat þó að allir væru svona buzy yfir sjónvarpinu, fékk mér pepperoní pizzu, þetta var samt ekkert pepperoni, heldur grænt chilli

Svo hitti ég nýja vini og þeir eru sko hardcore ROKKARAR

 

jejejeeess 

   

Stuttgart 2007 002  

Þessi var fyrir þig my dear Sara... Skohh dúleg stelpa tótan tín. 

Ég ákvað að taka enga friends diska med mér, ég hélt ég væri vaxinn upp úr teirri vitleysu, en NEI aldeilis ekki, var svo heppinn ad tad var einn diskur í tölvunni minni, ég er búin ad horfa á hann á hverju kvöldi síðan ég kom, fokk mig vantar nýjan. Joey er aðeins of oft búin að troða 15 oreo kexum upp í sig, jebb hans personal best. 

Á föstudaginn síðasta fór ég á tjúttið með listaspírum.. Byrjuðum voða kósý í artífartí eldhúspartýi, þar var sko bara vodkaskot með agúrkum á boðstólnum(Álfhildur ég man sko þegar þú lést mig drekka vodkann þinn), fyrst var ég mjög efins að þetta væri nú sniðugt... En ég er íslenskur víkingur og fékk mér eitt og síðan ekki neitt..  fórum á stað sem heitir rocker og þar var DJ og hann var e-ð tengdur Prodigy, en ég náði aldrei hvernig, stóð bara stórum stöfum og plakatinu hans PRODIGY..

Þar vildu allir ólmir bjóða mér í fleiri vodkaskot og aftur kom víkingurinn upp ímér og ég læt freistast  en eftir það sagði ég bara eine bier eða no no no tequila is better for your health.....  Myndirnar frá þessu kvöldi eru mjög skemtilegar, flest allar af mér reyndar, því við fórum í photograph leik og ég fékk að vera módelið

Ahh

Sofie crazy girl

DJ

 

Model.is    eda hvad
 

Hey guys ég er að hugsa um að gera smá makeover á mér, aðalega til að vera in style in germany.. ég þyki mjög nerdy en ég er að verða sannur þýskari. Ég breytti mér í nýja photo shop forritinu mínu ;) 

 

 

 Þetta þykir eflaust mjög skrítið á Íslandi en þið vitið ekki hvað þetta er svalt,þú ert ekki maður með mönnum nema að hafa svona fallegar strýpur í hárinu, stundum setja þær bara eina í toppinn en það er bara fyrir þær sem þora;) þessi tíska kemur pottþétt til Íslands eftir svona 2-3 ár, við erum alltaf soldið sein skiluru... 

Jæja elskur er farinn að leika mér við börnin mín  

Blæjó

Eins

Og

Jón

Spæjó

Segir

Alltaf 


» 24 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 12:46:34 / solskinsbarn

Velkomin/nn á BlogCentral

Þetta er fyrsta færslan þín á BlogCentral. Til að eyða henni eða breyta notar þú umsjónarvefinn sem þú kemst inná með því að smella á "Vefstjórn" hér í valmyndinni vinstra megin.

Inni í vefstjórninni getur þú skrifað nýjar færslur, breytt færslum eða eytt þeim.
Sama gildir um gestabók þar sem þú getur eytt færslum úr henni og haft yfirsýn yfir um leið þá sem skrifa í þína gestabók

Viljir þú hafa tengla á aðrar heimasíður getur þú auðveldlega bætt þeim við undir "Tenglar" í vefstjórninni.

Til að breyta útliti síðunnar og nota þau útlit sem eru í boði smellirðu á "Stillingar á síðu" sem finna má neðarlega í valmyndinni vinstra megin.

Viljir þú bæta við bloggurum á síðuna þína til að geta skráð sig sömuleiðis inná síðuna þína, þá ferðu í "Notendur" neðst í valmyndinni vinstra megin.

Undir aukahlutir getur þú bætt hinum ýmsu hlutum inná síðuna eins og t.d. niðurteljara, leit, dagatal og fleira.
Gangi þér vel að blogga,

Besti kveðjur, BlogCentral

» 0 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill